Lifandi Vatnið Testo

Testo Lifandi Vatnið

Við brekkurætur litla lindin leitar upp að fylla kerið
Á sér jöfnum hita heldur hennar mildi þessu veldur

Dúðuð er í dýjamosa
Deigan, mjúkan, ferskan, grænan einangruð frá illum mætti
Eitri, græðgi og sóðahætti

Ein og bláeygð fjalladís í hörkugaddi ekki frýs

Ljómar vatnið líknarandi lifandi er brunnur þessi
Þegar einhvern þorstinn plagar þegar strembnir gerast dagar þar er svölun alltaf vís